Miðbær kynnir eitt af glæsilegri einbýlishúsum Garðabæjar.
Húsið teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt 1992 og stendur neðan við götu í Óttuhæð Garðabæ. Húsið telur 5 svefnherbergi og stórar bjartar stofur, 3 baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan flísalagðan bílskúr.
Fallegur afgirtur gróinn garður með palli úr jatobvið og 10 manna heitum potti, flísalögðum með mosak-flísum. Stéttar, bílaplan og kantsteinar eru úr íslensku grágrýti unnu af Steinsmiðjunni Rein. Pallar eru úr Jatobavið. Lýsingar að framam og aftan við hús eru stórglæsilegar.
Lýsing eignar.Á aðalhæð eru stór og björt stofa með útgengi á stórar suð- vestursvalir með miklu útsýni. Stofan er lögð eikarparketi og svartur bekkur í bogaglugga lagður selsskinni fylgir. Opið úr borðstofu inní stofu og góð tenging við eldhúsið sem er með glugga á tvo vegu. Tæki í eldhúsi eru Smeg og Miele og fylgja einnig GE tvöfaldur ískápur og uppþvottavél. Skrifstofa/forstofuherbergi er við inngang/andyri sem er lagt nýju kókosteppi. Gestasnyrting er inn af anddyri. Bílskúr er tvöfaldur með geymslulofti. Miklar og fallegar innréttingar eru í bílskúr.
Á jarðhæð/neðri hæð er gengið niður fallegan bogadreginn stiga. Komið er inn í sjónvarpsstofu með útgengi á flísalagða verönd. Inn af sjónvarpsstofu eru þrjú mjög rúmgóð herbergi.
Hjónasvíta er flísalögð og með stórum fataskáp, útgengt á verönd úr Jatopavið. Bose hljómtæki og hátalarar í svefnherberginu fylgja. Tengt hjónasvítu er gangur og þaðan gengið inn á baðherbergi og þaðan gengt aftur í sjónvarpssofu og inn í rúmgott þvotttahús með góðum innréttingum. Þar er samsett þvottavél og þurrkari sem getur fylgt.
Gólfefni eru eikarparket lagt í fiskabeinamunstur og flísar ásamt teppum.Garðurinn umhverfis húsið er gríðarlega fallegur og var kostað miklu til. Þar er flísalögð verönd í suður og 4 Bose útihátalarar á veggjum fylgja. Frá verönd liggur leiðin í 10 manna mosaik-lagðan heitan pott og flísalögð stétt umhverfis hann. Við pottinn stendur glæsilegur stuðlabergssteinn. Veggur á lóðarmörkum er fallega upplýstur. Skápageymslur í garði. Falleg blanda af Jatobavið, flísum, grágrýti og glæslega hirtu grasi gerir garðinn að stílhreinu augnayndi. Á lóðarmörkun neðan við húsið er mögnuð grjóthleðsla.
Öll ljós í eigninni fylgja nema ljós yfir stiga sem og allar gardínur í húsinuNánari upplýsingar veitir Sigfús Aðalsteinsson Löggildur fasteignasali, í síma 898-9979, tölvupóstur [email protected] eða Kristbjörn Sigurðsson lgf sími 6923000 tölvupóstur [email protected].Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000. Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 74.400.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.