Falleg, rúmgóð og björt 3 herbergja íbúð á 2. hæð við Berjavelli í Hafnarfirði.
Stutt er í skóla, leikskóla og flesta þjónustu.
Ljósar innréttingar, eikarparket og flísar á gólfum. Nánari lýsing:Forstofa: Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskápum sem ná uppí loft.
Eldhús: Eldhús er með parketi á gólfi og borðkrók. Hvítar innréttingar með dökkri borðplötu. Ofn, háfur og helluborð.
Stofa: Stofan er parketlögð og útgengt er frá stofu á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 2, með parketi á gólfi og eru bæði herbergin með fataskápum sem ná uppí loft.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu og dökkri borðplötu. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Þvottahúsið er innan íbúðar og útbúið með hvítri borðplötu með vaski. Flísalagt gólf.
Geymsla: Eigninni fylgir rúmgóð sér geymsla í sameign.
Í sameign er einnig góð hjóla- og vagnageymsla.Þetta er falleg fjölskylduíbúð á frábærum stað í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Stutt er í 2 grunnskóla, 3 leikskóla, verslun, íþróttasvæði, líkamsrækt, aðra þjónustu og út í náttúruna.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigfús Aðalsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 8989979 eða email [email protected]