LÆKKAÐ VERÐ - TILBOÐ - LÆKKAÐ VERÐ Miðbær kynnir: Fjögurra herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi rétt hjá Austurveri.
Íbúðin var upphaflega teiknuð með tveim svefnherberbgjum á norður hlið og stórri stofu í suður en búið er að gera þriðja svefnherbergið í hluta af stofurými sem var.
Eitt herbergi og geymsla í kjallara fylgja, en búið að að gera sér þvottaaðstöðu og sturtu í herberginu.Hentar vel til útleigu.
Eignin er laus við kaupsamning Lýsing: Stórt hol, flísalagt, en þaðan er gengið í allar vistaverur.
Tvö svefnherbergi og á milli þeirra er eldhúsið.
Eldhús gott með flísum á gólfi og þar eldri en góð viðarinnrétting með áföstu eldhúsborði og bekkjum, gluggi í norður.
Hjónaherbergið með góðum skápum, parket á gólfi.
Baðbergið er með baðkari/sturtu og innréttingu, flísar á gólfi en veggir eru með viðarklæðningu.
Innaf stofu er svo rúmgott svefnherbergi með suður glugga og þaðan gengt út á rúmgóðar suður svalir.
Stofan er góð með stórum glugga í suður.
Gólfefni eru parket og dökkar flísar.
Í kjallara er svo ca 8 fm herbergi/geymsla með sturtu aðstöðu og þar tengt fyrir þvottavél.Á geymslugangi er svo minni sér geymsla.
Einnig sameiginleg snyrting niðri ef eigendur vilja nýta herbergi niðri.
Nýlega búið að endurnýja lagnir undir húsinu.
NÁNARI UPPLÝSINGAR.Pantið skoðun, Kristbjörn Sigurðsson lgf í síma 692-3000 | [email protected]