Miðbær fasteignasala kynnir glæsi-eignina Starmýri 2c, 105 Reykjavík, endurbyggð/endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang í Starmýri 2c. Frábær staðsetning.
.
Eignin er 2ja herbergja alls 57.4 m2 íbúð og skiptist í stofu/eldhús, svefnherbergi, wc með walk-inn sturtu og gang/andyri. Þá er geymsla íbúðarinnar í húsinu Starmýri 2.
Miklar endurbætur fóru fram í eigninni á síðasta ári og má segja að allt hafi verið tekið í gegn.
Lagnir voru endurnýjaðar, bæði rafmagns- og pípulagnir. Botnlagnir höfðu verið endurnýjaðar áður. Gluggar nýir sem og inngönguhurð. Innréttingar og tæki endurnýjuð, flísar á á gólf og veggi baðrýmis, nýtt parket, nýjar innihurðar ásamt því að settur var gólfhiti í eignina. Að utan var neðri hluti húss klæddur með cembrit-steinplötum og málaður. Aukin lofthæð er í eigninni. öll ljós í eigninni fylgja sem og stórglæsileg gluggatjöld.
Í eldhúsi er innfelldur ísskápur og uppþvottavél sem fylgja. Öll tæki í eldhúsi er AEG og innréttingar frá HTH. Gólfefni og flísar frá Birgisson.
Álftamýraskóli er í bakgarðinum, leikskólinn Álftaborg örstutt frá, verslanakjarninn Miðbær í göngufæri, Kringlan verslunarmiðstöð er í 5-10 min göngufæri og svo má lengi telja.
Nánari upplýsingar veittar í síma Kristbjörn í síma 6923000 og email [email protected].Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.