Costablancaeignir.is og Miðbær fasteignasala kynna:GLÆSILEGAR GOLFVILLUR Á LA FINCA GOLFVELLINUM
Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á einni hæð ásamt stórum kjallara, í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. Mikil lofthæð í alrými gefur glæsilegt yfirbragð. Stór sér lóð með einkasundlaug. Bílastæði inni á lokaðri lóð. Auk þess fylgir stór kjallari, sem hægt er að láta innrétta eftir óskum kaupanda gegn aukagjaldi. Þar er td. hægt að hafa bílskúr, gestaherbergi, tómstunarrými eða góða vinnuaðstöðu.Nánari lýsing:Falleg aðkoma er að húsinu og er skipulag eftirfarandi. Eldhús, með góðri tengingu við stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð sem gefur glæsilegt yfirbragð. Þá er bein tenging við veröndina sem 37,5 fm. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.
Kjallari er undir öllu húsinu sem hægt er að láta innrétta eftir eigin óskum hvort sem er með fjölgun herbergja, gym, sjónvarpsherbegi eða það sem hvern og einn helst langar.
Lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Við bjóðum góðan golfpakka, greiðum skoðunarferð og margt fleira við staðfest kaup á húsi.
Ca.15 -20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.
Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og alla sem kunna gott að meta.
Glæslilegir hjólastígar tengja svæðið við næstu bæi.
Verð 779.000 Evrur. (112.900.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK)
Húsið er 135 fm.
Verönd 38 fm.
Kjallari 172 fm
Samtals 345 fm.
AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI.
TIL AFHENDINGAR Í FEB. 2027.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigfús Aðalsteinsson í síma 8989979 eða emali [email protected]