Miðbær kynnir 407,4 fm fasteign á tveimur hæðum með 15 útleigueiningum við Stapahraun 2 í Hafnarfirði. Eignin skiptist þannig að neðri hæðin er 202,8 fm og efri hæðin 204,6 fm, samtals 407,4 fm.
Húsið er allt í leigu í dag með góðum leigjendum - Mögulegt fyrir væntanlegan kaupanda að yfirtaka leigusamningana.
Eignin er úttekin af Slökkvuliði höfðuðborgarsvæðis varðandi brunavarnir. Heildarleigutekjur á mánuði ca. 2.500.000 kr.
Lýsing eignar.Samtals 15 stúdíóíbúðir eru í húsinu.
- Allar íbúðir hafa sér eldhúskrók og baðherbergi með sturtu.
- Stærðir eru frá 13 upp í 30 fm.
- Hverri íbúð fylgir sérmerkt stæði á lóð.
- Húsvörður býr í húsinu (Sér m.a. um vikuleg þrif á sameign)
Á neðri hæðinni er anddyri, 7 íbúðir, hol með nýjum þvottavélum og þurrkurum, sameiginleg geymsla með hillukerfi.
Á efri hæðinni eru 8 íbúðir, innrétting á gangi og útg. á svalir.
Húsið er allt hið snyrtilegasta að innan og utan og hefur verið mikið endurnýjað upp á síðkastið.
Sérbílastæði fylgja eigninni og er bílastæði fyrir hverja íbúð á lóðinni.Nánari upplýsingar veita Sigfús Aðalsteinsson Lgf, s. 898-9979, tp.
[email protected] eða Kristbjörn Sigurðsson Lgf s. 8623000 tp
[email protected]Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000. Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 74.400.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.