Fljótsmörk 6-12 Hveragerði, þriggja til fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi í hjarta bæjarins. Tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi ( gæti verið 3 herbergið) samliggjandi stofa og borðstofa,baðherbergi,þvottaherbergi.
Forstofa; flísar á gólfi og loftháir skápar
Þvottahús; flísar á gólfi, stálvaskur,skáp, pláss er fyrir þvottavél og búið að setja rör fyrir þurkarabarka út.
Hol; parket á gólfi. Eldhús/stofa; parket á gólfi, ljós eldhúsinnrétting, útgengt út á svalir sem snúa í vestur.
Baðherbergi; flísalagt í hólf og gólf, upphengt wc, sturta, innrétting, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi; parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Dyrasími með myndavél er í íbúðinni. Lyfta er í sameign.
Í kjallara eru sérmerktar geymslur og hjóla- og vagnageymsla. Í garðinum er lítill leikvöllur fyrir börnin. Húsið byggt upp með forsteyptum einingum. Yfirborð eininga hússins er lagt með kvartmulningi, en að auki eru nokkrir fletir hússins klæddir lárétt liggjandi bárujáni í lit og timbri, setrusvið. Sérinngangur af svölum. Stutt er í skóla, íþróttahús, verslun og aðra þjónustu. Hér er um að ræða vel skipulagða og bjarta íbúð á frábærum stað í bænum.
NÁNARI UPPLÝSINGAR. Pantið skoðun, Kristbjörn Sigurðsson lgf í síma 692-3000 |
[email protected]Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.